Lögin hennar ÓMÓ
Vita skaltu að gleðin leynist söngnum í
Margrét samdi fjölda sönglaga í gegn um tíðina, langoftast við frumsamin ljóð og kvæði. Í nokkrum tilfellum samdi hún lög við texta annarra en einnig átti hún til að snara textum erlendra laga yfir á íslensku. Stærstur hluti laganna var saminn fyrir kennslu og tónlistarflutning í Fossvogsskóla; til flutnings á skólaskemmtunum og í leikritum nemenda, í tengslum við þemadaga í skólanum, fyrir blokkflautunám nemendanna, fyrir barnakórinn sem hún stjórnaði um árabil, eða einfaldlega skemmtileg krakkalög sem er upplagt að syngja í tónmenntatímum.
Fyrir utan kennsluna varð íslensk náttúra, trúin, fjölskyldan og bara almennt lífið og tilveran Margréti innblástur í ljóða og lagagerð.
Hér er gerð tilraun til að flokka á annað hundrað nótur að sönglögum Margrétar en í raun skarast þau að miklu leyti. Hægt er að nálgast nóturnar hér með því að hlaða þeim niður. Öllum er frjálst að nota þau s.s. í kennslu eða til einkanota svo fremi sem höfundar er getið. Afla þarf heimildar hjá afkomendum Margrétar ef nýta á verk hennar til útgáfu, í auglýsingar eða í viðskiptalegum tilgangi.