Vísur úr ferðalögum um landið
31. mars, 2026Trausti veðurfræðingur
31. mars, 2026Við Svignaskarð
Hér er fögur fjallasýn,
fléttuð ís og blóma.
Vildi ég yrði ævin mín
ofin slíkum ljóma.
Fararstjóri hafði orð á því er við ókum inn á Holtavörðuheiði að nú væri landslagið orðið svolítið heiðarlegt.
Fréttin þótti mörgum merk,
mig þó undra hljóti,
að nú sé Herrans handaverk
með heiðarlegra móti.
