Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Augun þín blá
Augun þín blá eru mitt ljósaljós,
munnur þinn hýr er mín rósarós.
Öll ertu lík álfum í skóg
og því áttu skilið hrósahrós.
Ekkert ég veit fallegra fljóðafljóð;
þú hefur kveikt í mér glóðaglóð.
Væri ég skáld skyldi ég kveða
þér öll mín bestu ljóðaljóð.
Gerðu mér nú dálitla bónabón,
þó að ég sé mesta flónaflón.
Játaðu mér tryggð þína' og trú
svo við getum orðið hjónahjón.
Og er hann blæs norðan frá pólapól,
verður þinn faðmur mitt skjólaskjól.
Hjá þér ég vil ævinni eyða
og halda öll mín jólajól.
Jónas Árnason
