Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Mamma
Aldrei gleymist eldurinn sem lifði,
ástkæra mamma, í arninum hjá þér.
Mamma er ég sigli út á heimsins breiðu höf,
heiman, fyrsta sinni er dýrmætust sú gjöf
er gafst þú ungum syni, því gjöful var þín hönd,
gleðinnar og kærleikans mér sýndi lönd.
:/:Aldrei gleymist eldurinn sem lifði,
ástkæra mamma, í arninum hjá þér:/:
Mamma, þá er fley mitt er á fjarlægustu slóð
finn ég ætið best hve þú varst mér ósköp góð.
Ég reyna vil í söng mínum að segja huga minn
og sendi hann með blænum heim í bæinn þinn.
:/:Aldrei gleymist eldurinn sem lifði,
ástkæra mamma, í arninum hjá þér:/:
Ólafur Gaukur Þórhallsson
