Til karlmanna
23. apríl, 2026Sjálfslýsingar
23. apríl, 2026Að yrkja
Efla landar stuðlastál,
stökum hvössum hreykja.
Hér er eins og bál við bál
búið sé að kveikja.
—
Ei við höfum andann misst,
ekkert til þess spörum
að vor gamla ljóðalist
lifa megi á vörum.
—
Stuðlarnir mig styrkja,
stytta langa vöku,
ef ég reyni að yrkja
ofurlitla stöku.
—
Hérna dýru djásnin mín,
dreg ég fram úr ryki,
þó mitt litla ljóðaskrín
léttvægt eflaust þyki.
