Inn og út um gluggann
22. mars, 2026
Labba út í mónum
22. mars, 2026
Inn og út um gluggann
22. mars, 2026
Labba út í mónum
22. mars, 2026

Í grænni lautu þar geymi ég hringinn
sem mér var gefinn og hvar er hann nú,
sem mér var gefinn og hvar er hann nú?

Leiklýsing:
Nemendur syngja lagið og ganga réttsælis í hring allir nema einn sem grúfir sig niður í miðjum hringnum. Áður en leikurinn hefst fær eitt barnið hring sem það geymir í lófa sínum. Um leið og lagið endar rétta allir fram hendur með kreppta hnefa, eins og þeir væru með eitthvað í höndunum (Ef þáttakendur eru margir má láta þá rétta fram aðra höndina). Nú fær miðjumaðurinn þrjár tilraunir til þess að finna hringinn, Það gerir hann með því að slá létt á hendur hinna, en munið bara þrjár hendur. Ef hann finnur ekki hringinn grúfir hann aftur, en í næsta skipti eru hendurnar hafðar fyrir aftan bak sem slegið var á í fyrra skiptið.

🎵 Upptöku með laglínunni má finna hér. 

Góða skemmtun!