Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Ást
Sólin brennir nóttina og nóttin slökkvir dag,
þú ert athvarf mitt fyrir og eftir sólarlag.
Þú ert yndið mitt áður og eftir að dagur rís,
svölun í sumarsins eldi og sólbráð á vetrarins ís.
Svali á sumardögum og sólskin um vetrarnótt,
þögn í seiðandi solli og söngur ef allt er hljótt.
Söngur í þöglum skógum og þögn í borganna dyn,
þú gafst mér jörðina og grasið og Guð á himnum að vin.
Þú gafst mér skýin og fjöllin og Guð til að styrkja mig
ég fann ei hvað lífið var fagurt fyrr en ég elskaði þig.
Ég fæddist til ljóssins og lífsins er lærði ég að unna þér
og ást mín fær ekki fölnað fyrr en með sjálfri mér.
Aldir og andartök hrynja með undursamlegum nið,
það er ekkert í heiminum öllum nema eilífðin Guð og við.
Þú gafst mér skýin og fjöllin og Guð til að styrkja mig
ég fann ei hvað lífið var fagurt fyrr en ég elskaði þig.
Ég fæddist til ljóssins og lífsins er lærði ég að unna þér
og ást mín fær ekki fölnað fyrr en með sjálfri mér.
Magnús Þór Sigumundsson
