Séð frá Langadal í Þórsmörk
21. mars, 2026
Aldarafmælisþankar
21. mars, 2026
Séð frá Langadal í Þórsmörk
21. mars, 2026
Aldarafmælisþankar
21. mars, 2026

Landmannalaugar

Það var hérna’ um daginn að mig dreymdi
svo dásamlega öræfanótt,
ég alein var og um mig gleðin streymdi
og allt var svo kyrrt og hljótt.

Í Landmannalaugum
ég lifði frjáls í öræfareit.
Með undrun í augum
ég alla þeirra fegurð leit.

En veruleikinn vakti mig af draumi
og vék í burtu öræfa sýn.
Þá ákvað ég að læðast burt í laumi
og leita’ uppi fjöllin mín.

Í Landmannalaugum
ég lifði frjáls í öræfareit.
Með undrun í augum
ég alla þeirra fegurð leit.

Hvert sem munu leiðir mínar liggja
þá lofað hef ég sjálfri mér því
að er mig taka stórborgir að styggja
þá stefni ég Laugar í.

(Nótur að lagi sem Margrét samdi við þetta ljóð sitt er að finna undir flipanum Lögin hér á vefnum)