Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Ástardúett (Stuðmenn)
Ég er dáinn úr ást
Þó hjartað dæli blóði.
Ég heyri engan mun
Á hávaða’ eða hljóði.
Ég er gagntekinn, altekin, heltekinn,
tekinn í framan.
Ég er andvana, máttvana, magnvana
þegar ég sé Hörpu Sjöfn Hermundardóttur,
Hörpu Sjöfn Hermundardóttur.
Ó, Harpa Sjöfn – Harpa Sjöfn.
Sterkur og stór,
stinnur eins og Sokki
sem Rúnki fór á
ríðandi á brokki.
Ég finn fyrir
skjálfta í hnjánum,
fiðringi í tánum með honum.
Ég er andvana, máttvana, magnvana
þegar ég sé
Kristinn stuð Styrkársson Proppé,
Kristinn stuð Styrkársson Proppé,
Stinna stuð,
Ó, Stinni stuð.
Samband þeirra er frá öllum hliðum séð, stórfínt,
alveg til fyrirmyndar.
Samband þeirra er frá öllum hliðum séð, stórfínt.
Hvar sem þú ert,
til sjávar eða sveita
þú efalaust ert
að ástinni að leita.
Hættu’ ekki, gefstu ekki upp
þó á móti þér blási.
Við leituðum lengi uns fundum hvort annað.
Kristinn stuð Styrkársson Proppé,
Harpa Sjöfn Hermundardóttir
Kristinn stuð...
Ó Harpa Sjöfn.
Samband þeirra er, o.s.frv.
Stuðmenn
