Vegavandræði
31. mars, 2026
Til ferðafélaga 
31. mars, 2026
Vegavandræði
31. mars, 2026
Til ferðafélaga 
31. mars, 2026

Á sumardaginn fyrsta

Þegar brosir sumarið við sænum, 
sólin þýðir hrannirnar í bænum, 
vaknar allt til lífs í landi hörðu, 
líka von um friðartíð á jörðu. 
 
Meðan bölið ógnar öðrum þjóðum, 
ennþá friður helst á norðurslóðum. 
Þó að stríð og örbirgð ýmsum grandi, 
enginn býr við skort í þessu landi. 
 
Því er bágt að vera að kveina og kvarta, 
kalt þó reynist næturmyrkrið svarta. 
Nú er burtu víkur harður vetur, 
vorið gleðiblæ á lífið setur. 
 
Þegar hér á landi lengist dagur, 
lifnar jörð og vænkast allra hagur, 
til mín brosir fagur fjallahringur 
finnst mér gott að vera Íslendingur.