Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Ef væri ég söngvari
Ef væri ég söngvari syngi ég ljóð
um sólina vorið og land mitt og þjóð.
En mömmu ég gæfi mín ljúfustu ljóð,
hún leiðir mig verndar og er mér svo góð.
Ef gæti ég farið sem fiskur um haf
ég fengi mér dýrustu perlur og raf.
Og rafið ég geymdi og gæfi’ekki braut
en gerði’ henni mömmu úr perlunum skraut.
Ef kynni’ ég að sauma ég keypti mér lín
og klæði ég gerði mér snotur og fín.
En mömmu úr silki ég saumaði margt
úr silfri og gulli, hið dýrasta skart.
Páll J. Árdal
