Bim bam bim bam
22. mars, 2026
Ég lonníetturnar lét á nefið
22. mars, 2026
Bim bam bim bam
22. mars, 2026
Ég lonníetturnar lét á nefið
22. mars, 2026

Ein ég sit og sauma
inni’ í litlu húsi.
Enginn kemur að sjá mig
nema litla músin.
Hoppaðu upp og lokaðu augunum,
bentu í austur, bentu í vestur,
bentu á þann sem að þér þykir bestur.

Leiklýsing:
Börnin leiðast í hring og ganga réttsælis. Eitt barnanna er inni í hringnum og situr á hækjum sér og þykist vera að sauma. (góð æfing í látbragðsleik) Þegar sungið er „Hoppaðu upp“ þá hoppar miðjumaðurinn upp og gerir eins og sagt er í vísunni; lokar augunum, bendir í austur (gott tilefni til að læra áttirnar) og síðan í vestur, stoppar síðan við með útrétta hönd og sá er „bestur“ sem miðjumaðurinn bendir á þegar vísunni lýkur, og á að vera inni í hringnum næst.

🎵 Upptöku með laglínunni má finna hér. 

Góða skemmtun!