Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Fyrir ofan regnbogann

Landið rétt fyrir ofan regnbogann
raulað var um í barnagælu sem vel ég kann.
Landið bláum og heiðum himni næst,
hjartans vonir og þrár og draumar þar geta ræst.
Ég óska þess af heilum hug
að héðan gæti’ ég lyfst á flug til skýja.
Sem brjóstsykur í munni mér
þá mundi bráðna vandi hver og burtu flýja.
Fuglar renna sér yfir regnbogann,
rétt mér fyndist að einnig ég kæmist yfir hann.
Hversvegna má ég ekki fljúga eins og fuglinn yfir regnbogann?