Álftafjörður 
31. mars, 2026
Fyrr og nú 
31. mars, 2026
Álftafjörður 
31. mars, 2026
Fyrr og nú 
31. mars, 2026

Hugleiðing

Geymir sögu, fjarða fjöld,
fornra afreksmanna.
Þó að nú sé önnur öld,
ummerkin það sanna. 

Því ég hugsa um horfna stund,
hörð er reyndist glíma,<
þá er héldu á hafsins fund
hetjur fyrri tíma. 

Á sexæringum sóttu á haf.
Sinntu úr veri róðri.
Djúpmenn lifðu ekki af
einum jarðar gróðri. 

Konur unnu karlmannsverk,
kröfum sinntu brýnum.
Þeim var trygging trúin sterk,
treystu Drottni sínum. 

Þegar voru veðrin hörð,
valt á hafi dugga,
bljúg til himins bænargjörð
barst, frá lágum glugga. 

Blasir nú við tóttin tóm,
tæmdu fjarðabólin.
En vallagrös og villiblóm
vermir júlísólin.