Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Gleym-mér-ei

Það úti grær á víðavangi,
veikur leggur krónu ber,
vekur mann af vanans gangi.
Viðkvæmni um hugann fer.
Dýrðlegt tákn um Drottins mildi,
draumlynd sál við grýttan svörð,
himinblámans blæju reifað,
við brjóst þitt fóstrað, móðir jörð.

Eins og barn að blíðri móður
blöð það réttir sólu mót.
Hljómar dagsins ástaróður.
Orku teigar blómsins rót.
Í ástarvímu’, ef frítt það færir
fljóð að barmi unnustans,
það dregur sig með duldu afli,
deyjandi, að brjósti hans.

Þegar undir sólin sígur,
sveipast jörð í rökkurfeld,
tárdögg blómsins titrar, hnígur,
tregar dagsins horfna eld.
Mót himni lyftir blöðum bláum,
bærist hægt í kvöldsins þey.
Angurvært af hrelldu hjarta
hvíslar: „Drottinn, gleym mér ei.“

Kristján frá Djúpalæk