Átta fílar
22. mars, 2026Ein ég sit og sauma
22. mars, 2026Hópurinn stendur upp við vegg allir nema einn sem snýr á móti hinum og stendur í dálítilli fjarlægð frá hópnum. Sá sem „er hann“ (segjum að það sé hann Þórir) byrjar og syngur;
Þórir:“Bim-bam-bim-bam, bimbi-rimbi-rim-bam“. Um leið gengur hann fram í fyrri hluta vísunnar en bakkar til baka í þeim síðari.
Þá svarar hópurinn (og gengur fram og aftur eins og áður): „Hver er að berja, bimbi-rimbi-rim-bam“.
Þórir: „Það er hann Þórir, bimbi-rimbi-rim-bam“.
Hópur: „Hvern vill hann finna, bimbi-rimbi-rim-bam“.
Þórir: „Elskulegu Stínu sína, bimbi-rimbi-rim-bam“.
( og nú nefnir Þórir þann sem hann vill fá til sín, ath. það getur verið hvort sem er strákur eða stelpa.)
Hópur: „Hvað vill hann með hana, bimbi-rimbi-rim-bam“.
Þórir: „Láta hana vaska upp, bimbi-rimbi-rim-bam“. (auðvitað ákveðið þið sjálf hvað viðkomandi á að gera)
Hópur: „Hvað fær hún að launum, bimbi-rimbi-rim-bam“.
Þórir: „Tíu börn í bala og átján rottuhala“ (muna, vera sniðugur í svari en ekki leiðinlegur)
Hópur: „Fari hún þá með gleði, bimbi-rimbi-rim-bam“. (eða skít og skömm, eftir því hvað við á)
Og nú fer Stína yfir til Þóris og þau koma sér saman um hvern á að biðja um næst. o.s.frv.
Afbrigði af þessum leik er „Hæsingja-læsingja-lon-don-don“. Þá byrjar sá sem er hann á að syngja:
„Mætti´ég biðja’ um Stínu,Hæsingja-læsingja-lon-don-don“.
Hópurinn svarar:„Hvað vilt þú með Stínu, Hæsingja-læsingja-lon-don-don“.
Og síðan er restin af leiknum eins og „Bim-bam bim-bam“, nema að þið segið alltaf; „Hæsingja-læsingja-lon-don-don“, í restina á hverri setningu. Lagið er alveg eins.
Góða skemmtun!
