Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Húsin hafa augu

Um allar götur fólkið fer
Og ferðast hvert sem er
En húsin standa sterk og kyrr
Stolt sem áður fyrr.

Ein og sér og hlið við hlið
Heimsins götur við
Húsin geta horft á það
Sem hérna á sér stað.

Því húsin hafa augu
Sem heiminn geta séð
Ef renna tár um rúðurnar
Þau reyna að fylgjast með.

Timbur, steypa, stál og gler
Þau stara þar og hér
Á fólk sem sagði furðuleg
Sem fara lífsins veg

Ein og sér og hlið við hlið
Heimsins götur við
Húsin geta horft á það
Sem hérna á sér stað.

Því húsin hafa augu
Sem heiminn geta séð
Ef renna tár um rúðurnar
Þau reyna að fylgjast með.

Og þau finna gleði, sorg og synd
Og sæla götu mynd
Því húsin okkar hafa sál
Og heimsins vanda og heimsins vandamál

Því húsin hafa augu
Sem heiminn geta séð
Ef renna tár um rúðurnar
Þau reyna að fylgjast með

Kristján Hreinsson