Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Riddari götunnar
Rennur af stað ungi riddarinn,
rykið það þyrlast um slóð.
Hondan hans nýja er fákurinn,
hjálmurinn glitrar sem glóð.
Tryllir og tætir upp malbikið,
titrar og skelfur allt hér
reykmettar loftið þá vindillinn
er riddari götunnar fer.
Ég hef alltaf verið veik fyrir svona strák,
sem geysist um á mótorfák,
og hræðist ekki neitt.
Aftan á hjóli hans situr snót,
sú sem hann elskar í dag.
Sýna þau hvort öðru blíðuhót
og svífa´inn í kvöldsólarlag.
