Mývatnseldar, 1724
31. mars, 2026
Álftafjörður 
31. mars, 2026
Mývatnseldar, 1724
31. mars, 2026
Álftafjörður 
31. mars, 2026

Léttir

Með haustinu vaknar í mannlífi margt
sem magnar upp náttmyrkrið svarta,
og fólkið í geðinu gerir svo argt
að gleymist hún, vornóttin bjarta. 

 Og þannig var komið í vetrarins vá
sem var hér að kveðja um daginn
að oftsinnis döpur ég andvaka lá
er óveðrið geysaði um bæinn. 

 Mér fannst eins og heyrði ég voðaleg vein
er vindurinn æddi um grundir,
því stöðugt í lífvana stráunum hvein
og stórhríðin gnauðaði undir. 

Hún næðing um glugga og gáttirnar bar
og gerði allt svo kuldalegt inni
að hérna oft ríkjandi vonleysi var
og vetrarins héla í sinni. 

 En dag einn er leiðindin lögðust mig á,
ég leit út um gluggann að vanda,
þá beint upp úr fannþöktu beði ég sá
tvær blómstrandi dvergliljur standa. 

 Þá lyftust frá sinninu sólmyrkvatjöld,
og söngleikinn heyrði ég kunnan
sem gerði mér ljóst þetta kyrrláta kvöld
að komin var lóan að sunnan. 

 Nú vonleysið gráa sem veturinn ól
mun víkja úr sérhverju spori,
því nepjuna köldu þú sigraðir sól,
og sál mína fylltir af vori.