Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Úti kyrrt er allt og hljótt
Úti kyrrt er allt og hljótt
Úti
kyrrt er allt og hljótt,
ekki kvik á nokkru strái.
Vindar sofa sætt og rótt.
Sjávaröldur kúra' í dái.
Víður himinn, lögur, láð
ljómar, sunnu geislum stráð.
Ungleg
brosa grös á grund.
Gróður prýðir laut og bala.
Blómleg
skreyta birkilund
blöðin græn í hlíðum dala.
Fífill undir fögrum hól
faðminn breiðir móti sól.
Fuglinn
hýr, er fyrrum svaf
fjarri byggð í skorum kletta,
vetrarblundi vakinn af
víða þreytir flugið létta.
Hátt í lofti hörpu slær,
heilsar vori röddin skær.
Helgi Hálfdánarson
