Á sumardaginn fyrsta 
31. mars, 2026
ORA
23. apríl, 2026
Á sumardaginn fyrsta 
31. mars, 2026
ORA
23. apríl, 2026

Til ferðafélaga

Enginn fær með orðum lýst 
undrum móður jarðar. 
Hefur okkur finna fýst 
faðminn Skagafjarðar. 
 
Þarna lifðum Drottins dag, 
Drangeyjar við kletta. 
Fugl í bjargi lífsins lag 
lék við hafið slétta. 
 
Þó að okkur flytji fley, 
fögnuð lífið bjóði, 
fegri perlur eignumst ei 
í okkar minjasjóði. 
 
Inn til dala, út við sjó, 
áttum góðar stundir. 
Mesta gildið gæfu þó 
glaðir endurfundir.