Skrifað í gestabók í Landmannalaugum
31. mars, 2026Vísur úr ferðalögum um landið
31. mars, 2026Í leit að áningastað
Hér er allt svo autt og strítt
enginn jarðargróður.
Hve ég vildi finna frítt
friðsælt skógarrjóður.
Þetta er mikið bölvað brölt
um brunaurð og sanda.
Eitthvað verð ég orðin völt
eftir þennan fjanda.
Skrifað inni við Langasjó, eftir erfiðan dag.
