Sjálfslýsingar
23. apríl, 2026Í Lyfjameðferð á Landsspítalanum
Margt hér gefur líf og lit
og lyfja sæta angan.
Í bláu lúxussæti’ ég sit
sumardaginn langan.
Á því vansa engan tel,
og ekkert nema gróða,
því hugsar okkur hér um vel
hjúkkuliðið góða.
