Án titils
31. mars, 2026Af Iðunnarfundum
31. mars, 2026Til fræmeistara Garðyrkjufélags Íslands
Meðan góan blæs með byl,
birtu fram þið seiðið.
Með litlum fræum yndi og yl
út um landið breiðið.
Bið ég þess er bráðnar mjöll
og baðar sólin foldu,
að fræin ykkar fái öll
fasta rót í moldu.
—
Nú er vísast vinur minn
að vorið sé á gægjum,
því Halldóra með hópinn sinn
hamast nú í fræum.
Vítt um landið léttist brá
lifnar blómaskari.
Mikinn heiður af því á
okkar fræmeistari.
