Til fræmeistara Garðyrkjufélags Íslands
31. mars, 2026Dýrt bað
31. mars, 2026Af Iðunnarfundum
Gleður Iðunn, varla vér
verjum betur tíma.
Seður hugann, aldrei er
andlaus gömul ríma.
Merkingin breytist sé vísan lesin afturábak.
—
Andrés Valberg skoraði á mig að yrkja hringhenda sléttubandavísu sem skipti um merkingu væri hún lesin afturábak.
Smiður góður Andrés er,
ekki fljóðin svíkur.
Kviður ljóða sannar sér
sjaldan fróðleik víkur.
—
Andrés finnst mér ótrúlega iðjusamur.
Upplesturinn eyrað nemur,
en á meðan heilinn semur.
Til Andrésar Valberg
Nú með gleði hlýt ég hér
henda nokkrum línum
Þú hefur Andrés yljað mér
enn með bögum þínum.
Finnst mér oft sem undurhljóð
andi gola í runni,
er ég heyri listaljóð
leika í þínum munni.
Víst það gæddi gróður minn
geislarósum fínum
ef að gréri arfinn þinn
í öllum beðum mínum.
