Hann Frímann fór á engjar
22. mars, 2026Í grænni lautu
22. mars, 2026Nem ég staðar bak við hana Siggu,
nem ég staðar bak við hana Siggu.
Nem ég staðar bak við hana Siggu
svo fer hún sína leið:
Inn og út um gluggann,
inn og út um gluggann,
inn og út um gluggann
og alltaf sömu leið.
Leiklýsing:
Börnin leiðast í hring. Þau standa kyrr öll nema eitt þeirra sem er utan við hringinn og stillir sér upp aftan við Siggu. Þegar komið er að „Inn og út um gluggann“ í vísunni leggur Sigga af stað inn í hringinn, gengur til vinstri og fer undir armana á krökkunum í hringnum sem nú halda höndunum uppi, en leiðast áfram. Sem sagt bilin milli krakkanna í hringnum eru gluggarnir sem halarófan fer inn og út um; út um þann fyrsta til vinstri, inn um þann næsta o.s.frv.Þegar komið er að síðustu línunni í söngnum stansar Sigga fyrir aftan þann sem hún er þá stödd hjá, t.d. Kalla, og er þá í næstu vísu sungið: „Nem ég staðar bak við hann Kalla“ o.s.frv.
Góða skemmtun!
