Miðjupúki
21. mars, 2026Yatsy
22. mars, 2026
![]() |
![]() |
![]() |
Skipaorusta er tveggja manna spil. Hvor keppandi fær svona blað (sem þú getur prentað út hér). Útlit og fjölda skipa hvors leikmanns má sjá hér á myndinni til hliðar. Byrjið með að teikna eigin skip í aðra töfluna en athugið að þau mega ekki snertast. Hin taflan er svo hægt sé að merkja inn hvar skip andstæðingsins liggja. Markmiðið er að sökkva skipum andstæðingsins. Það gerið þið með því að nefna til skiptis reiti. Ef annar segir t.d. „E-5″ þá skoðar mótspilarinn hvort eitthvað er í þeim reit hjá sér. Ef skip sem hann er með liggur gegnum þann reit segir hann; „Þú hefur laskað ……skip“ (nefnir skipið sem er laskað/skemmt, t.d beitiskip). Spyrjandinn setur þá X í E-5-reitinn hjá sér á tóma borðinu. Ef ekkert er í reitnum sem hann nefnir setur hann punkt í reitinn til að sýna að reiturinn sé tómur. Þannig finnur hann smátt og smátt út hvernig skipið snýr og sekkur því að lokum. Sami keppandi spyr aldrei tvisvar í röð. Setjið punkta umhverfis skip sem hefur verið sökkt svo að þið nefnið ekki þá reiti og munið þá að skip mega aldrei snertast. Góða skemmtun! |


