Álfkonan
23. apríl, 2026Kosningar í apríl 1983
23. apríl, 2026Þakkir
Það er margt svo þakkarvert í þessu lífi
Því er best að hætta kífi.
Lítum bara á landið okkar ljúfa, kæra
lífsgæðin mig endurnæra.
Fjöllin reist og fossar sem á flúðum duna
fegra hérna náttúruna.
Loftið hreint og lindir tærar lífs á vegi
lofa ég á hverjum degi.
Af heitu vatni höfum nóg, því hlýjar okkur
hitaveitu- gamall stokkur.
Laufin spretta, lifnar allt og lóan syngur
ljúft að vera Íslendingur.
