Vorbæn
23. apríl, 2026
Kærleiksvon
23. apríl, 2026
Vorbæn
23. apríl, 2026
Kærleiksvon
23. apríl, 2026

Kveðja til Sigurðar Jónssonar frá Haukagili

Vísnasafnið Sigurðar
sannarlega hylli.
Er þar geymd til eilífðar
alþýðunnar snilli.

Þar má lipurt tungutak
títt á síðum greina.
Óspart logar óðarak,
yljar málið hreina.

Lýstur niður ljóðaþrá
við lestur þinna kvera.
Hnittin vildi ég heitast þá
hagyrðingur vera.

Ei í þeirra kjölfar kemst,
klórið læt þó flakka,
en „Vísnasafnið” fyrst og fremst
fyrir vil ég þakka.