Töfrar
23. apríl, 2026
„Bjarnaháttur“
23. apríl, 2026
Töfrar
23. apríl, 2026
„Bjarnaháttur“
23. apríl, 2026

Hugsað til baka

Gaman er að grúska hér í gömlum fræðum
sem finna má í fornum skræðum.

Þess er getið þegar menn frá Þrændalögum
lögðu grunn að landans högum.

Eins er víst að einhverjir frá Írlandsströndum
sigldu hingað seglum þöndum.

Menn skrifuðu á skinnbækur um skata grimma,
þeirra alda þjóðarkrimma.

Af aldarfari oft á tíðum okkur hreykjum,
glímu bæði og gleðileikjum.

Yndismestan alltaf tel ég arfinn, sanna,
ljóðaveginn ljúfa  kanna.

En gleymum ekki að glutrað þessu getum niður
ef enginn finnst hér óðasmiður.

Leggjum rækt við löngum geymda ljóðahætti,
iðkum þá af öllum mætti.

25.mars 2013