Grímsstaðavör
23. apríl, 2026Hugsað til baka
23. apríl, 2026Töfrar
Ef frelsið nú aftur fengi
ég færi’ inn að jöklunum háu,
um gömlu öræfin gengi
og gældi við jurtirnar smáu.
Þar blasa við hamrar, í hæðum,
og hraunin sem runnu forðum.
Þeim guðdómi’ í gráum klæðum,
við getum ei lýst með orðum.
Og einn er hér sumarsins seiður
á söndum og blökkum klöppum,
það eru blómstrandi breiður
af bleikrauðum geldingahnöppum.
Nú þakklát ég höfðinu halla
og hugsa um þig, jörðina mína,
því ég fékk að upplifa alla
öræfakyrrðina þína.
Sumarið 2012
