Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Ábyggilega
Ég veit um konu sem kemur á óvart.
Hún er í krabbanum alveg eins og þú.
Hún hefur áhuga á indverskum jóga
og öllu því sem að lítur að trú.
Varst' ekki alltaf að kvarta og kveina?
Þú vildir konu með rísandi ljón.
Þið eigið ábyggilega vel saman
og verðið eflaust á endanum hjón.
Nú vek ég athygli þína á einu:
Þú hefur mest alla tíð verið staur.
Þú gætir komist í sjúklegar álnir
og alltaf átt í vasanum aur.
Já hún á helling af silfri og seðlum
og hefur herbergisþernu og þjón.
Þið eigið ábyggilega vel saman
og verðið eflaust á endanum hjón.
:,:Na, na, na, na, na, na, na, na, na, na. :,:
Það er aðeins eitt sem mér láðist að nefna,
hún hefur útlitið ekki með sér.
Því hún er ófríð og allnokkuð skeggjuð
og ekki öldungis fönguleg ber.
En það er sjálfsagt í stakasta lagi,
því að þú sérð varla hálfa sjón.
Þið eigið ábyggilega vel saman
og verðið eflaust á endanum hjón.
:,: Na, na, na, na, na, na, na, na, na, na. :,:
Sálin hans Jóns míns
