Veðurspá
23. apríl, 2026Sléttubönd
23. apríl, 2026Limrur
Nú finnst mér ég vera að vaxa
því víst er ég farin að baksa
við ærískan stíl
með fílósófíl
og fæði af mér limrur – í taxa.
—
Hann Halli er hreint engin bleyða
né haldinn af andlegum leiða.
Um gjörvallar trissur,
með gildrur og byssur,
er garpurinn alltaf að veiða.
—
Henni Gvendólínu var gefið
gæðatóbak í nefið.
En þá fór í verra
er þurfti’ hún að hnerra
og þakið fauk út í sefið.
—
Ég þekki einn veraldarvarg
sem viðhefur rifrildi’ og sarg.
Í bóndanum þvargar
og bölvar og gargar
svo berst út á torg hennar arg.
—
Nú farinn til himna er Haraldur
því hérna gekk bölvaður faraldur.
En huggun var þó
er Haraldur dó
að hundrað og átta hans var aldur.
