Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Að krossinum vil ég koma Kristur
Að krossinum vil ég koma Kristur
og játa þér afbrot mín.
Af þyngslum þeim er ég orðinn þyrstur,
ó, Drottinn ég þarfnast þín.
Ég iðrast og ég þrái að
þú endurnýir mig
og líf mitt verði aftur það
sem vitnað geti um þig.
Ó, mig þyrstir eftir þér
því að beinin tærast í mér.
Kom og lækna sérhvert sár,
ó, Drottinn þerra öll mín tár.
Ágúst Böðvarsson
