Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Þakklæti
Ég er bara káta barnið þitt, hvað annað,
leik mér sæll við þetta eða hitt og finn að,
lífið allt um kring er leikfang mitt,
og ég lifi.
Og á sólskinsgöngu heyri ég mitt hjarta
syngja fögur lög um kærleiksveginn bjarta.
Fegurð lífsins fyllir huga minn,
og ég þakka.
Guð minn ég vil þakka þér allt sem þú gefur mér.
Ég veit þú skilur alveg hvað ég met það mikils.
Horfi ég á garðana og tré í blóma.
Hugsa svo um börnin prúð og pen og róma
hvað yndislegt það er að vera til,
og ég lifi.
Guð minn ég vil þakka þér allt sem þú gefur mér.
Ég veit þú skilur alveg hvað ég met það mikils.
Ég er bara káta barnið þitt, hvað annað,
leik mér sæll við þetta eða hitt og finn að,
lífið allt um kring er leikfang mitt,
og ég lifi.
