Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Vísnabrot

En haldið ekki’ hann Halli komi á grúfunni,
á heljarstökki, fram af einni þúfunni.
Hann fór það bara fínt
en fannst hann hafa týnt
gleraugunum, höfðinu’ eða húfunni.

Og Óli svældi, upp úr prímusrokkinum,
andapönnukökur handa flokkinum.
Ég orsök til þess tel
þær tókust svona vel
að Ella hélt svo ansi vel á kokkinum.

Ólafur Björn Guðmundsson