Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Amma kveður
Ekki gráta unginn minn
amma kveður við drenginn sinn,
gullinhærðan glókoll þinn
geymdu’ í faðmi mínum,
elsku litli ljúfurinn,
líkur afa sínum.
Afi þinn á Barði bjó,
bændaprýði, ríkur nóg.
Við mér ungri heimur hló.
Ég hrasaði fyrr en varði.
Ætli ég muni ekki þó
árið mitt á Barði.
Man ég víst hve hlýtt hann hló,
hversu augað geislum sló
og hve brosið bað og dró,
blendin svör og fyndin.
Ég lést ei vita’ en vissi þó
að vofði yfir mér syndin.
Dýrt varð mér það eina ár.
Afi þinn er löngu nár.
Öll mín bros og öll mín tár
eru þaðan runnin,
gleðin ljúf og sorgin sár
af sama toga spunnin.
Elsku litli ljúfur minn
leiki við þig heimurinn.
Ástin gefi þér ylinn sinn
þótt einhver fyrir það líði.
Vertu eins og afi þinn
allra bænda prýði.
Örn Arnarson
