ORA
23. apríl, 2026Við eyðibýlið Þorleifsstaði
23. apríl, 2026Þrándheimsblót
Samið fyrir landana í Þrándheimi.
Lag: Það er svo margt ef að er gáð.
Á þorrablót í Þrándheimi
nú þekkir landar fara.
Þeir hrútspunga og hangikjöt
og harðfisk aldrei spara.
Trog skulu tæmast
það trútt er okkur sæmast.
Nú lifna gleðilæti
og kæti.
Og nú skal verða feikna fjör
og fyllast allir magar,
þótt deila megi eflaust um
hvort útlitið það lagar.
En hver er að hugsa’ um
hrellingar í buxum.
Bara þorrann blótum,
þess njótum.
Við kæstan hákarl kætast menn
og kneyfa brennivínið.
Nú drykkjuhreysti okkar enn
þið Íslendingar sýnið.
Sáttir nú syngjum
saman glösum klingjum.
Dansinn látum duna
af funa.
Við skulum okkur skemmta´í nótt
og skunda´í ræl og valsinn
svo út um bæinn, íslensk drótt,
nú undirtaki galsinn.
Og fyrir öllum
Íslendingum snjöllum
með sannri gleði´í sálum
nú skálum.
Samið í byrjun árs 1996 þegar dóttir og tengdasonur Margrétar voru í þorrablótsnefnd Íslendingafélagsins Kjartans í Þrándheimi.
