Skip mitt er komið að landi
22. mars, 2026Ein kona fram fyrir ekkjumann
22. mars, 2026Í þessum leik geta allt frá tveimur til ótakmarkaðs fjölda tekið þátt.Einn þátttakenda hugsar sér einhvern ákveðinn hlut eða hugtak. Hinn eða hinir spyrja þannig spurninga að alltaf sé hægt að svara annaðhvort já eða nei. Skemmtilegast er að skipta spyrjendum í tvö lið sem spyrja til skiptis. Við hvert já sem liðið fær, fær það stig og vinnur þá liðið sem hefur fleiri stig í lokin. Þið getið líka sjálf búið til einhverjar öðruvísi reglur og það er líka skemmtilegt að fara í þennan leik þó leikmenn séu bara tveir.
Góðar spurningar eru t.d. Er þetta hlutur? Er þetta hugtak? Einnig að byrja á því að komast að því hvort hluturinn (ef það er hlutur) sé í steinaríkinu, jurtaríkinu eða dýraríkinu.
Til hluta telst allt sem er áþreifanlegt, lifandi eða dautt, en hugtök eru óáþreifanleg. Esjan mundi t.d. teljast til hluta þó hún sé heilt fjall, en andrúms-loftið væri hugtak. Ritgerðin hennar Siggu um sólina er hugtak en bókin sem hún skrifaði hana í er hlutur.
Góða skemmtun!
