Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Bæn

Þegar ungur ég var
og alls óhræddur við
hætturnar sem lífið faldi mér.
ég braust einn gegnum her
sem að lagði að mér,
ég var sár, þú komst og reistir mig.

Ég fann leiðina á ný
og fékk styrk minn á því
er þú stóðst við hliðina á mér.

Núna stend ég á því
sem að þú lagðir í gjöfina
sem að okkur færðir,
mér og öllum sem á eftir komu
og lærðu það hjá þér.
Nú sé ég dag á ný.

Hvert sem ég fer, ertu hér.
Þú ert með mér
þó að ég sé einn á ferð
gegnum dimma dali, fer.
Hvar sem ég er ertu mér
viti sem að merkir land í ólgusjó
þú stýrir mér í var
og ég finn þig aftur þar.

Í bæn minni sæki ég
eldinn sem þarf
til að lýsa upp hjá mér nóttina.

Í þann mund sem ég sé
að hún lokast á ný
leiðin þín sem alltaf virtist greið.
kemur loginn frá þér
og hann kallar á mig
og nú sé ég veginn fram á við.

Núna stend ég á því
sem að þú lagðir í gjöfina
sem að okkur færðir,
mér og öllum sem á eftir komu
og lærðu það hjá þér.
Nú sé ég dag á ný.

Hvert sem ég fer, ertu hér.
Þú ert með mér
þó að ég sé einn á ferð
gegnum dimma dali, fer.
Hvar sem ég er ertu mér
viti sem að merkir land í ólgusjó
þú stýrir mér í var
og ég finn þig aftur þar.

Einar Bárðarson