Hugsað til Filippseyja
23. apríl, 2026
Forsetakosningar árið 1980
23. apríl, 2026
Hugsað til Filippseyja
23. apríl, 2026
Forsetakosningar árið 1980
23. apríl, 2026

Forsetaefni

Nú í framboð forseta 
færir menn sér raða, 
og með löngun einblína 
út til Bessastaða. 
 
Vigdís er þar vífið eitt, 
vísast með því reiknum 
að hún geti þorrann þreytt 
í þjóðarskútuleiknum. 
 
Þrasi menn um þjóðarhag 
þyngstu orðin falla. 
En Guðlaugur með glæsibrag 
gæti sætt þá alla. 
 
Hefur Pétur hirð um sig 
að hætti diplómata. 
Mundi hann um margan stig 
milli skerja rata. 
 
Síðast tel ég þingmannsþjark. 
Þykir maður vitur. 
Skori Albert ennþá mark 
út á nesið flytur.

Samið í aðdraganda forsetakosninga 1980