Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Bráðum birta tekur

Bráðum birta tekur,
blessuð sólin vekur
fífu' og stör í flóa
fuglasöng í móa.
Brumið vex á birkihríslunum,
blærinn hefur margt að hvísla um.
Lömbin skoppa létt um tún og börð,
ljósið skín á jörð.

Fönnin fer að hlána,
fjallavötnin blána.
Léttir lækir kliða,
litlu börnin iða.
Brumið sprettur birkihríslum á,
blærinn hefur mörgu' að segja frá.
Börnin leika létt um tún og börð.
Leiftrar sól um jörð.