Kveðja til Sigurðar Jónssonar frá Haukagili
23. apríl, 2026Lóan
23. apríl, 2026Kærleiksvon
Ýmsir þungan út um svið
ævidrunga þreyja,
böl og hungur búa við,
börnin ungu deyja.
Aðrir plægja akra og sá,
eiga slægju fína,
nautnum hægja aldrei á,
eta nægju sína.
Ef við réttum öðrum hönd,
aumra léttum byrði,
kærleiks fléttum friðarbönd,
fólkið mettað yrði.
