Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Breytir borg um svip
Breytir borg um svip birtu bregða fer,
skuggar langir skríða fram það er samkoma á Her.
Í Grjótaþorpi gömul hús
geyspa’ á meðan drekka á Duus
dagsins amsturs börn og gleyma sér.
Berst frá Hótel borg baráttunnar ljóð,
þar inni kveða Vísnavinir verkamannsins óð.
Jón á Austurvelli er,
uppi’ á stalli einn hann ber
bæjarlífsins minninganna sjóð.
Lúin sál í síðum frakka
labbar yfir Lækjartorg,
inn í strætóskýlisskarkalann
með dropa sína’ og sorg.
Eyðilegt er Austurstræti,
ómar öldurhúsum frá,
dags þar liðinn þys og læti
leggur skugga’ á húsin grá.
Börnum sínum er borgin skjól og vörn
sem breiðir yfir andamamma unga sína á Tjörn.
Gistir hana gleði’ og sorg,
glæðir lífi götur, torg.
Það er nótt í Reykjavíkurborg.
Þegar mætir morgunbjarmi
myrkri nætur, allt er hljótt.
Langt frá heimsins glaumi og harmi
hvílir bærinn vært og rótt.
Undir vegg af veikum mætti
vaknar vorsins fyrsta blóm.
Syngur hverjum hjartans slætti
söng um lífsins helgidóm.
Kristín Lilliendahl
