Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Í kjallaranum

Í kjallaranum, í kjallaranum
honum Kela aldrei reikningslistin brást.
Í kjallaranum, í kjallaranum
en Keli lærði aldrei neitt um koss og meyjarást.

Það sagt hefur verið í sögum
og sungin mörg um það ljóð
hvað ástin er ótrygg og hverful
þó ungmeyjan sé við þig góð.
en allt er það ekkert að marka,
sem á því má glögglega sjá
að piltarnir yrkja oftast um þær
sem aldrei líta á þá.

Í kjallaranum..............

Hann Keli í kjallaranum fæddist
og Keli var mesta efnisbarn
og lærði fljótt meira en allir aðrir.
Hvort úti var sólskin eða hjarn
hann sat alltaf sveittur við að læra
og sást aldrei úti um nótt
þó krakkarnir allir kölluðu' á hann
á koddanum svaf hann svo rótt.

Í kjallaranum...............

En svo þegar hann var átján ára
hann áttaði sig loks á því
að konan er karlmanninum yndi
það kveikti bál honum í.
Þær stungu hann af ein eftir aðra,
sem er kannski dálítil von
því hann kunni minna um koss og ást
en Kötlu og Jón Gerreksson.

Í kjallaranum..........

Svo gafst hann upp á þessu öllu
og orti mörg og döpur ljóð.
Hve ástin gæti verið indæl
ef einhver væri honum góð
en loksins ein, sem var við aldur,
að sér hann Kela þó tók
á endanum lenti í hljónaband.
Nú aldrei lítur hann í bók.

Í kjallaranum........

Því kerlingin er kraftaleg og iðin
hann Keli má nú vinna eins og þræll
og andvaka hann yrkir kvæði
hve áður hann var glaður og sæll.
Og svona það sannaðist á Kela,
sem sagði ég áður frá,
að piltarnir ættu að yrkja um þær
sem aldrei líta á þá.

Í kjallaranum..............

Jón Sigurðsson