Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Dalakofinn
Vertu hjá mér, Dísa, meðan kvöldsins klukkur hringja
og kaldir stormar næða um skóg og eyðisand;
þá skal ég okkur bæði yfir djúpið dökka syngja
heim í dalinn, þar sem ég ætla að byggja og nema land.
Kysstu mig ...kysstu mig. Þú þekkir dalinn Dísa,
þar sem dvergar búa í steinum, og vofur læðast hljótt
og hörpusláttur berst yfir hjarn og bláa ísa,
og huldufólkið dansar um stjörnubjarta nótt.
Og meðan blómin anga og sorgir okkar sofa
er sælt að vera fátækur, elsku Dísa mín,
og byggja sér í lyngholti lítinn dalakofa
við lindina, sem minnir á bláu augun þín.
Ég elska þig; ég elska þig og dalinn, Dísa
og dalurinn og fjöllin og blómin elska þig.
í Norðri brenna stjörnur, sem veginn okkur vísa,
og vorið kemur bráðum...... Dísa, kysstu mig
Davíð Stefánsson
