Hríslan og lækurinn
23. apríl, 2026
Töfrar
23. apríl, 2026
Hríslan og lækurinn
23. apríl, 2026
Töfrar
23. apríl, 2026

Grímsstaðavör

Um fjöruna reika, svo fjarri allri sút,
ég finn hérna æskuna mína.
Frá Grímsstaðavörinni gerðu menn út
grásleppubátana sína.

Þarna má hluti í þaranum sjá,
sem þankana láta hvarfla.
Netaskúrar og teinarnir tjá
tilveru grásleppukarla.

En menn eiga sína söguna hver
og sannlega fannst mér ei gaman,
er geyspandi rauðmagi réttur var mér
svo rækalli ljótur í framan.

Ég gleðst yfir minningum, mætustu því
mögnuð er gömul saga.
Menn eiga að lesa um allt það á ný
sem áttum við fyrrum daga.