Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Dögun

Rís við ský röðull, enn á ný,
leika sér ljósgeislar, hraðir.
Yfir sæ, yfir byggð og bæ
svífa nú söngfuglar, glaðir.
Morgunblærinn syngur sumarhlýr
söng á geislanna strengi.
Lífsins fögru, ungu ævintýr
ylja nú heitt og lengi.

Rís við ský röðull enn á ný,
brosir við blómaugum smáum.
Sunnanblær syngur, nær og fjær,
sól er á sundunum bláum.
Morgunblærinn syngur sumarhlýr
söng á geislanna strengi.
Lífsins fögru, ungu ævintýr
ylja nú heitt og lengi.

Ingólfur Jónsson frá Prestbakka