Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Donna Donna
Ungur kálfur, einn í kerru,
er á leiðinni’ á markaðinn.
Hátt í lofti sér hann svölu
svífa frjálsa um himininn.
Napur vindur hlær og hlær
og hamast villt og ótt,
hlær og hlær í heilan dag
og hálfa sumarnótt.
:/: Donna, Donna, Donna, Donna
Donna, Donna, Donna, Don :/:
Hættu’ að kvarta hvæsir bóndinn,
kálfur ertu með band um háls.
Af hverju hefurðu ekki vængi
eins og svalan stolt og frjáls.
Napur vindur hlær og hlær...
Saklaus kálfur svo var drepinn,
sjálfur dauðinn hann ungan fann,
samt hann ætíð unni frelsi
eins og svalan sem fljúga kann.
Napur vindur hlær og hlær...
Valur Óskarsson
