Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Draumur hjarðsveinsins
Í birkilaut hvíldi ég bakkanum á,
þar bunaði smálækjarspræna.
Mig dreymdi’ að í sólskini sæti ég þá
hjá smámey við kotbæinn græna.
Og hóglega’ í draumnum með höfuð ég lá
í hnjám hinnar fríðustu vinu
og ástfanginn mændi’ ég í augun hin blá
sem yfir mér ljómandi skinu.
Úf fíflum og sóleyjum festar hún batt,
þær fléttur hún yfir mig lagði.
Þá barðist mér hjartað í brjóstinu glatt
en bundin var tungan og þagði.
Loks hneigir hún andlitið ofan að mér
svo ilmblæ af vörum ég kenni.
Ó, fagnaðaryndi, hve farsæll ég er,
nú fæ ég víst kossinn frá henni.
En rétt þegar nálgaðist munnur að munn,
að meynni var faðmur minn snúinn,
þá flaug hjá mér þröstur svo þaut við í runn
og þar með var draumurinn búinn.
Steingrímur Thorsteinsson
